DataMarket, sem er nokkuð merkilegt fyrirtæki, var að setja í loftið nýjasta verkefnið sitt. Ísland í tölum. Nokkuð gaman að sjá þetta svona visualt.
Hver hefur ekki gaman af upplýsingum?
August 20th, 2009Annar mánuður!
August 18th, 2009Oj hvað ég er lélegur í þessu.
Lesið bara BirnuBlog. Það virkar berur en mitt.
BirnuBlog
Mánuður
July 18th, 2009
Held að bloggið mitt hafi bara farið í sumarfrí … enda mánuður (og dagur betur) síðan ég skrifaði síðustu færslu. En ég las færslu hjá Keizaranum þar sem hann hótaði að taka fólk út af hlekkja-listanum sínum ef það hætti að blogga. Ef ég er tekinn af listanum þar get ég alveg eins slökkt á internetinu. Ekki halda að ég sé að vera kaldhæðinn.
En þessi færsla má ekki líta út fyrir að vera færsla bara til að friða Keizarann, svo ég verð að skrifa um eitthvað. Þannig að við skulum gera þetta að smá sjálf-plöggi.
Fyrir 2-3 vikum uppfærði ég aðal-síðuna mína. Ef þú ert ekki búin/n að skoða, endilega kíktu. www.larusson.com
Svo eru 2 bækur að koma út núna í september með verkum eftir mig. Annarsvegar bók sem heitir MyOwnBusinessCard (hægt að sjá og panta hér) og svo bókin sem er hér fyrir ofan sem heitir Tempus Fugit – World’s best Calander Design (hægt að sjá og panta hana hér).
Er aðallega spenntur að sjá Tempus Fugit, því í henni eru nokkrir frægir hönnuðir og þar á meðal einn af mínum uppáhalds, Massimo Vignelli.
Nú ætla ég að halda áfram að horfa á Opna Breska í golfi og kannski fá mér annan kaffi.
Ég blogga (ekki) og þess vegna er ég (ekki)!
June 17th, 2009Ég veit stundum ekki af hverju ég er ennþá að blogga, ég virðist nánast vera hættur að skrifa neitt hér. Set einstaka sinnum inn eitthvað sem mér finnst fyndið … en finnst það svo kannski ekkert fyndið þegar ég skoða það næst. Tími samt ekki að hætta að loka síðunni … búinn að blogga án þess að formlega hætta síðan svona 2002 (eða fyrr?). Annars twittera ég orðið meira. Það er meira stuð … ennþá.
Annars get ég sagt að ég kom heim frá Barcelona í fyrradag, ásamt 3 FÍT-urum, þar sem við vorum að dæma í ADC*E keppninni. Ég fékk reyndar ekki að dæma, var yfir-dómari … sem felst aðallega í því að sjá til þess að hinir dómararnir rífist ekki.
Barcelona er fín, en svoldið skítug og heit. Annars mætti segja að uppúr standi að af okkur 4 sem fórum að dæma, þá voru 3 rændir. Einn missti veskið sitt með öllum kortum og ökuskírteni. Einn missti myndavélina sína með öllum myndunum sem hann var búinn að taka í ferðinni. Og ég missti símann minn. Það var bara daman í hópnum sem var látin í friði.
Ég ætla ekki að lofa að ég bloggi meir. En ég lofa að ég ætla ekki að slökkva á blogginu mínu. Betra sjaldan en aldrei.
Letur-nörda-brandari
May 26th, 2009
Eureka!
May 16th, 2009Var loksins að fatta trikkið til að gera góðan cappuchino! Náði aldrei nægilegri froði … en lausnin var svo einföld.
Ef ég hætti sem hönnuður ætla ég að opna CaféHö þar sem allir sem biðja um expresso verður hent öfugum út.
Nætur sms
May 10th, 2009Rétt upp hendi sem sendi mér sms frá ja.is, klukkan 2 í nótt, með skilaboðunum:
“WHAT? BA er að senda mér sms!!! Hvad er i gangi? gjv”"
MIX!
May 8th, 2009
Það er komið nýtt Mix … eða gamalt nýtt … eða …
Gamla Mixið er ss. komið aftur.
Og það vara gerð svaka fín auglýsing … seeeeem hann Siggi á heiðurinn af. Kíkið á hana hér.
Stefanía á (milli) afmæli í dag!
May 8th, 2009
Hún á (milli) afmæl’í dag,
hún á (milli) afmæl’í dag,
hún er 5 mánaða hún Stefaníaaaaaa…
hún á (milli) afmæl’í dag.
Lygar lygar lygar…
April 19th, 2009Þið gætuð hafa verið að horfa á Stöð 2 eða verið að lesa mbl og séð þetta. En þetta er allt bölvuð lýgi. Eins og sést á myndinni hér að neðan var ég ótvíræður sigurvegari … fyrir utan að ég tek mig svo vel út með gripinn!
